Samantekt um þingmál

Handiðnaður

948. mál á 153. löggjafarþingi.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að einfalda umsýslu og útgáfu sveinsbréfa svo að útgáfa bréfanna geti orðið að fullu rafræn þannig að þeim sem hafa fengið útgefið sveinsbréf verði gert auðveldara að sýna fram á réttindi sín og um leið neytendum gert auðveldara að staðreyna umrædd réttindi og skyldur.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að útgáfa sveinsbréfa verði flutt frá ráðherra (háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu) til sýslumanna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um handiðnað, nr. 42/1978.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar tæknilegri breytingu.


Síðast breytt 18.09.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.